Það er komið að
því........ 
já ég held að það sé hreinlega komið að því að
blogga áður en allir halda að ég sé horfin af þessari
plánetu...
það er sko hægt að segja að það sé mjög margt
sem hefur á daga mína drifið síðustu mánuði og ætla ég að koma með
svona smá innsýn í atburðina sem hafa staðið uppúr og skelli myndum
með...
hér ví gó...
í september tókum ég, Kata, Halla og Lísa
okkur saman og plönuðum óvissuferð fyrir húsmæðraskólastelpurnar.
hún tókst mjög vel og mætingin fór fram úr öllum vonum sem var
geggjað, við vorum 20 af 24.
við fórum í ratleik, svo heim til mín, og þar
fengum við okkur að borða, fengum snyrtivörukynningu á meðan við
vorum í lauginni úti í garði, borðuðum svo aftur og fengum kynningu
frá Adam og Evu sem var mjög skemmtileg og áhugaverð
svo var
partý hjá mér fram á kvöld og var svo haldið í keiluhöllina og
tekinn leikur þar og svo á djammið. við ferðuðumst eins og alvöru
drottningar... eða semsagt í limmósíum...
ég hafði ekki farið í
limmó síðan örugglega í 10.bekk
þannig að þetta var
skemmtilega spes... 
hér koma nokkrar myndir
skemmtilegur ratleikur í
Laugardalnum

við fórum með rútu úr laugardalnum og
heim til mín


við vorum með bleikt og svart þema

þessi er tekin í einni limmunni, en við vorum
með 3

hér erum við að koma okkur fyrir í limmunum.
við vorum með 3 limmur og það var ekkert smá töff hvernig þeim var
raðað upp fyrir utan heima hjá mér... allar svona í röð og
gaurarnir stóðu við hurðarnar og allt... frekar töff...

ég fékk leið á málningunni í herberginu mínu
þannig að ég málaði það í september.

það var semsagt gult og rautt... ekki spurja
mig... ég veit ekki afhverju... 





núna eru allir veggir hvítir 
Í október átti Halldóra afmæli og í nóvember
átti Edda afmæli og auðvitað voru hátíðahöld í tilefni
þess.
þær eru
orðnar 22 ára. 
hér er mynd
af skvísunum á djamminu í vetur. 

Halldóra og Edda
Eins og kannski einhverjir vita þá byrjaði ég
að vinna í Brimborg í nóv 2005. Og í des 2005 var
ég komin í stjórn starfsmannafélagsins ásamt 4 frábærum
strákum. Þar til í okt 2006 sáum við til þess að Brimborgarar
skemmtu sér.

Guffi ritari, Gunnar Þór og Felix
formaður

Gunnar Axel og ég gjaldkeri, frá því í ágúst
var ég líka formaður því Felix hætti.
Við fórum saman út að borða á Hereford í boði
Brimborgar, en í lok hvers starfsárs starfsmannafélagsins fær
stjórnin að velja stað til að fara á saman, svona einskonar
lokafundur... með djammi 
Ef einhver á heima í svona dæmi þá er það ég
og gafst ég ekki upp þegar átti að fara að kjósa nýja stjórn heldur
fékk ég fjórar stelpur/konur
til að bjóða sig fram með mér og
auðvitað unnum við þær kosningar... 
Í svona stjórn eru alltaf formaður, gjaldkeri,
ritari og 2 meðstjórnendur, en eins og kannski einhverjir vita þá
hefur Brimborg verið að ryðja sér veg í bloggheiminum og er
framkvæmdastjórinn t.d. með blogg, og ég kom með þá tillögu í
fyrirtækið að ganga bara alla leið í blogginu og sit ég núna sem
bloggstjóri í nýju strjórn Brimils (starfsmannafélagið).
Hér eru slóðirnar á bloggin hjá
Brimborg.
Brimborg http://brimborg.blog.is/blog/brimborg/
Framkvæmdastjórinn http://egill.blog.is/blog/egill/
Brimill (starfsmannafélagið) http://brimborg.blog.is/blog/brimill/
Í nóv fór ég til Lux með Imbu og það var
geggjað. við vorum í viku og við versluðum svo mikið að það eru
ekki lengur til föt í Luxembourg
án gríns... þegar maður ferðast
með iceland express þá máttu vera með 20 kíló og við 2 semsagt með
40 kíló... á leiðinni til baka vorum við með rúmleg 100 kíló með
okkur og það var svona 90% H&M...
en við fengum afslátt af
yfirvigtinni og þurftum bara að greiða fyrir 35 kíló í stað rúmlega
60.
Bara snilld...enda er enginn jafn töff klæddur og ég og
Imba. 

hér erum við í blæjubíl, ég í aftursætinu og
hún frammí en svona er tæknin góð... hehehe 

og hér er farangurinn okkar á leiðinni til
baka 
Ég, Sverrir, Margrét Rósa, Davíð, Kristín,
Gaui, Anna og Tóti fórum í sumarbústað til að fagna afmæli Davíðs
og líka síðustu dögum ársins 2006.
Ég fékk leigðan bústað í Miðhúsaskógum og hér
eru nokkrar myndir.

Kristín og Davíð afmælisbarn 

Margrét Rósa, Tóti og Sverrir í afmælisfíling
með hatta og allt
hehehe

Ég og Margrét Rósa virkilega hressar


Ég bakaði köku fyrir Davíð, hann er orðinn 23
ára 
Fyrir utan allt þetta þá er bara frábært að
frétta af mér, ég fór á Dale Carnegie námskeið í haust og verð
aðstoðarþjálfari á slíku námskeiði sem byrjar í lok jan, ég fór á
námskeið fyrir fullorðna... ég er orðin svo fullorðin...
en ég
verð aðstoðarþjálfari á námskeiði sem heitir Nýja kynslóðin og er
fyrir 18- 22 ára.
Svo eru auðvitað búin að vera jól og
sollis og ég held að þetta hafi bara verið skemmtilegustu jólin frá
því maður var lítill og sá ekkert annað en pakkana undir trénu. ég
hef nefnileg ekki verið neitt mikið jólabarn síðustu ár, en núna
tók ég þetta með trompi, bakaði alveg fullt, fékk lánuð börnin
hennar Krissu systir og bakaði með þeim og svo vorum við með svona
smá skemmtun á aðfangadagskvöld, sungum nokkur jólalög fyrir
famelíuna. virkilega skemmtilegt. 

Helgi og Marsý að baka piparkökur

Ég, Marsý og Helgi að syngja

Rokkstjarnan sjálf, Marsý 
Ég held... að þetta sé nóg í bili...

þar til næst...
Kv, Lilja megabloggari 